6.10.2008 | 08:39
Herfanginu skipt.
Stjórnendur Kaupþings og Landsbankans náðu í gær samkomulagi um hugmyndir um hvernig bankarnir tveir gætu unnið saman að því tryggja stöðugleika í fjármálalífinu í samvinnu við ríkisstjórn og Seðlabanka.
Hvað segir þetta okkur, Kaupþing og Landsbanki eru ekki að velta sér upp úr þessari "kreppu" sem er í gangi. Þeir velta bara fyrir sér möguleikum á því að hagnast sem mest á þessu ástandi án þess að leggja neitt á móti.
Af hverju geta Kaupþing og Landsbanki ekk selt eignir í útlöndum og flutt það fé heim sem fengist,.???
Er betra að Lífeyrissjóðirnir selji eignir erlendis og leggi það í óráðsíuna á Íslandi?, ég segi nei, það er vegna þess að það er útilokað að treysta stjórnmálamönnum nú til dags, það eina sem þeir standa fyrir er að lofa og lofa, en að standa við gefin loforð er andskoti langt aftan við þá
Forystumenn lífeyrissjóðanna töldu í gærkvöldi að ekki lægju fyrir skýr svör um áform bankanna.
Og getur örugglega dregist að þeir fái SKÝR svör.
Geir sagði hins vegar um miðnætti í gær að bankarnir myndu selja eignir í útlöndum. Það er mjög góður vilji hjá bönkunum til að selja eignir í útlöndum og ég tel að það sé nauðsynlegt.
Geir er snillingur í að segja ekki neitt. Af hvrju draga bankarnir lappirnar, ætla þeir að selja eignir eða ekki ?. Um það snýst málið
Nánar í Morgunblaðinu
![]() |
Sameiginleg aðkoma að Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2008 | 07:14
Af hverju EF ?
Aðferðafræðin í útreikningnum hefur ekkert breyst, segir Höskuldur Ólafsson, forstjóri Valitors
Svo dæmi sé tekið var gengi sterlingspundsins 199 kr. þegar fréttin var skrifuð en gengi á vefsíðu valitors 222 kr
Er ekki morgunljóst að þarna er mismunur ?, er þetta ekki enn eitt dæmið um hvernig flestir sem selja vörur og þjónustu reyna að svindla á viðskiptavinum sínum ?
Þegar upp kemst má alltaf skýla sér á bak við óviljandi mistök.
Stundum eru mistökin viljandi
![]() |
11% munur á opinberu gengi og VISA-gengi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)