Segir kröfu verkkaupa eiga sinn þátt í göllum!

Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri JÁverk ehf,viðurkennir að byggingahraðinn sé orðinn óraunhæfur,við það aukist hættan á göllum,verkaupi vilji stytta byggingatímann með öllum ráðum. 

Er þá ekki komið að verktakanum að segja stopp,hann getur ekki endalaust skýlt sér á bak við þrýsting frá verkkaupa.Vertakinn á að hafa þekkinguna (höfum reynsluna innan sviga) og getur þess vegna ráðið þessu alfarið.

En græðgin er svo mikil hjá báðu aðilum að þeir eru í rauninni að bjóða þessari hættu heim í sameiningu.Þeir standa nefnilega báðir fyrir partýinu og er frekar barnalegt að benda hver á annan þegr í óefni er komið .

Síðan stendur húseigandinn uppi með þessa galla, sem hann fær oftar en ekki lagaða nema þá fyrir eigin reikning,þar sem bæði verkkaupinn og verktakinn eru löngu farnir að starfa undir öðrum nöfnum og kennitölum.

Eins og málum er háttað í dag við húsbggingar,þá getur maður ekki einu sinni treyst því að fá óháðan aðila til að meta fyrir sig hús eða íbúð þar sem til dæmis steypuskemmdir koma oft ekki í ljós fyr en jafnvel eftir einhver ár

 


mbl.is Mikil aukning hefur orðið í gallamálum á undanförnum árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband