Hryllingsmynd!!!

Horfði á myndina Syndir feðranna í gærkvöldi þar sem fjallað er um upptökuheimilið í Breiðavik, það er á mörkunum að maður trúi því að svona hafi getað skeð á Íslandi, fyrir ekki lengri tíma.

Mannvonnskan, tillitsleysið gagnvart fjölskyldum drengjanna sem þangað voru sendir,að ekki sé talað um algerlega óhæft starfsfólk á heimilinu,eða að minnsta kosti stjórnendur þess er yfirþyrmandi.

Ég var gráti nær þegar einn viðmælandinn sagði frá því að honum og bróður hans hefði verið tilkynnt, að þeir ættu að fá að fara heim daginn eftir, þeir taka saman föggur sínar og bíða spenntir eftir því að fara,þegar kona (M'OÐIR .) spyr þá hvað þeir séu að gera, og þegar þeir segjast vera að bíða eftir því að farið verði með þá, segir hún að það hafi aldrei staðið til.

Hvað er þetta annað MANNVONNSKA af verstu tegund ?

Að vísu er langt síðan að ég komst að þeirri niðurstöðu, að svokölluð "barnaverndarnefnd" myndi vera ein hættulegasta nefnd sem fundinn hefur verið upp hér á landi. Ég man ekki til þess að hafa heyrt neinar sögur af farsælu starfi slíkrar nefndar, aftur á móti ótal sögur um ofríki,tillitsleysi og valdbeitingu þessara nefnda.

Ég velti því fyrir mér eftir á, hvernig í ósköpunum fólki sem átti að heita með heilbrigða dómgreind, gat dottið til hugar að setja á sömu stofnun, börn frá níu ára aldri og uppúr.

Áttu þeir sem þessu réðu ekki börn sjálfir,fannst þeim virkilega að þetta væri í lagi.?

Og allir tóku þátt í þessari mannvonnsku, þótt börnin segðu sveitaryfirvöldum sögu sína,var því aldrei ansað, þau voru vöktuð ef svo vildi til að hringt væri eða einhver kæmi í heimsókn, ef hverju ef ekkert var að fela.

Þeir yfirmenn þarna sem ljáðu máls á viðtölum, svara með engilsvip að þeim vitanlega hafi ekkert misjafnt farið fram á heimilinu,það þarf engan sérfræðing til þess að vita að þetta er bara fyrirsláttur (á ekta íslensku Lýgi). OG EF SVO VÆRI ÞÁ SÝNIR ÞAÐ BARA ENNÞÁ BETUR HVERSU GJÖRÓMÖGULEGIR STJÓRNENDUR  ÞEIR VORU.

Þetta verður alltaf svartur belttur á þjóðfélaginu,og vonandi að "barnavernadarnefndir" í dag læri af þessu, það hafa svo sem heyrst ýmsar sögur af vafasamri  framkvæmd mála hjá þeim þrátt fyrir aðgang að menntuðu fólki í þessari grein, og hafi Í huga að. AÐGÁT SKAL HÖFÐ Í NÆRVERU SÁLAR.

Menntun í þessum efnum er ekki nó, ef ekki fylgir með mannúð líka


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er innilega sammála þér í öllu sem þú nefnir hér Ari.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 09:42

2 identicon

Allir starfsmenn voru óhæfir ef þeir gerðu ekkert, allir samsekir ef þeir létu þetta fram hjá sér fara, það er ekki hægt að búa á Hótel Helvíti og þykjast ekki hafa tekið eftir neinu, menn sem segjast ekki hafa séð neitt óeðlilegt eru í það minnsta sekir um vanrækslu, gætu hugsanlega afsakað sig með að segjast þroskaheftir

DoctorE (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband