21.3.2008 | 11:55
Á hvaða forsendu byggist þessi nafnadeila ???
Hafa Grikkir ekki hreinann skjöld ganvart þessu héraði?
Orkar tvímælis að þeirhafi réttmæta lögsögu yfir héraðinu Makedoníu,eða hvað er málið ???
Fundað vegna nafnadeilu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er nú orðin frekar löng og mikil deila en ég skal reyna að stikla á stóru.
Málið snýst að miklu leiti um menningarlega arfleið Grikkja og þá sérstaklega tilkall þeirra til Alexanders Mikla, sem eins og flestir vita var frá (forn-)Makedóníu. Alexander, sem leiðtogi forn-Makedóníu lagði undir sig meirihluta heimsins (sem hann vissi af á þeim tíma) einhverjum 300 og eitthvað árum fyrir krist.
Það var undir stjórn Alexanders sem grísku borgríkin tóku að blómstra á ný en hann var mikill áhugamaður um "Helleníska" (forn-gríska) menningu, heimspeki og listir. Tungumál, menning, trúarbrögð, heimspeki og vísindaleg þekking Grikkja breiddist þannig út um allan heim og Makedóníska heimsveldið varð í raun og veru Hellenískt á mjög stuttum tíma.
Þannig má segja að Makedónía og hellenísk eða forn-grísk menning hafi tengst órjúfanlegum böndum allt frá þeim tíma - þrátt fyrir að heimsveldið losnaði í sundur áttu Makedónar samt eftir að vera mikilvægur hluti af "Grikklandi" allt frá þeim tíma, sem var meira menningarlegt hugtak en landfræðilegt.
Spólum núna áfram til 1946 þegar Suður-Serbía (sem er á öðru landsvæði en forn-Makedónía og er byggð slövum sem eru ekki vitund skyldir Grikkjum) er skyndilega endurskýrð "Makedónía"! Slavarnir settust að rétt sunnan við það sem núna er Grikkland einhverntíman á 7. öld eftir krist og eiga því nákvæmlega ekkert tilkall til menningarlegar arfðleiðar nágranna sinna í forn-Makedóníu.
Grikkir gjörsamlega töpuðu sér yfir þessu (það tengist reyndar pólitík eftirstríðsárana sem og vandamálum sem fylgja því að draga beina línu frá forn-Grikklandi til þess sem er í dag kallað Grikkland og stressi yfir muninum á hellenískri og "grískri" menningu - en ég ætla ekki að flækja þetta enn frekar í bili).
Hmn, núna þegar ég les þetta yfir meikar þetta ekkert rosalega mikið sense. Það er frekar erfitt að sjóða 2500 ára sögu margra menninga og rætur þeirra niður í stutt svar sem útskýrir hvað er að gerast í þessari deilu í dag.
Vona að þú sért allavega einhverju nær :)
og deilan hefur bara harnað síðan.
Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 13:11
Þessari síðustu setningu var ofaukið, hehe, hún var hluti af einhverri málsgrein sem ég var að reyna að smíða en gafst upp á.
Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 13:14
Þakka þér kærlega fyrir upplýsingarnar Gunnar. Ég geri mér grein fyrir því að að þessu verður ekki komið til skila orði til orðs á þessum vettvangi. Þótt ég sé fremur þunnur í grískum málefnum þá er það samt svo að þetta svarar nægilega miklu til þess að ég hef aðeins betri sýn á það, um hvað málið snýst.
Kveðja
Ari Guðmar Hallgrímsson, 21.3.2008 kl. 16:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.