10.10.2007 | 07:11
Hvar er rannsóknarblaðamennskan nú?
Fékk Vilhjálmur listann?
Mál málanna í gær var hins vegar ekki forkaupsrétturinn í Hitaveitu Suðurnesja, heldur hvort Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri hafi á eigendafundi í síðustu viku fengið eintak af lista með nöfnum þeirra starfsmanna sem fá áttu sérkjör á hlutabréfakaupum í REI.
Vilhjálmur segist hafa vitað um samninga við þessa starfsmenn, en aldrei séð listann og honum hafi ekki verið dreift.
Svandís Svavarsdóttir segist hins vegar hafa fengið listann á fundinum.
Það getur varla verið stórmál að komast að því hvort þeirra er að segja ósatt,ég veðja á Villa hann hefur lítið gert annað síðan hann varð borgarstjóri en klúðra málunum,og fara yfirleitt heilan hring þegar rætt er við hann.
![]() |
Undrun á sölu hlutarins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2007 | 16:58
Fyrir hvað stendur DV og hvað hefur það fram að færa??????????????
Ég er sammála Dorrit um að þessi frétt sé bæði móðgandi og særandi,aldrei bjóst ég við því að DV og Davíð Oddson yrðu bandamenn en það virðist vera orðin raunin.Var það ekki Davíð og hans nánasta hirð sem gaf veiðileyfi á forsetaembættið eftir að Ólafur Ragnar sigraði þeirra átrúnaðargoð glæsilega.?
Fróðlegt verður að fylgjast með því hvort eftirmaður Ólafs Ragnars verður í skotlínu fjölmiðla og annara sem telja sig vera réttborna til gagnrýni.
Það má sjálfsagt margt finna að Ólafi Ragnari,en ég held að þetta sé fyrsti forseti okkar sem hefur komið Íslandi virkilega á kortið,og fyrir hans tilkomu að ýmsum málum á erlendri grund hafa útrásarhópar og önnur Íslensk fyrirtæki átt greiðari leið en ella inn í ýms lönd sem hafa verið frekar treg á að viðurkenna vestrænan hugsanagang.
Ólafur Ragnar sagði að hann myndi ekki sitja með hendur í skauti á Bessatöðum,og það hefur hann ekki gert.Mér finnst að forseti okkar eigi ekki að vera einhver puntudúkka sem sé dregin fram þegar misvitrum stjórnmálamönnum býður svo við að horfa,og ég sé heldur ekkert athugavert við það þó hann nýti sér þau tækifæri sem bjóðast að ferðast með einkaaðilum þegar það býðst.Þar sem forseti hefur ekkert fast starf í stjórnkerfinu finnst mér þetta alveg gráupplagt hjá honum.
![]() |
Dorrit segir frétt DV móðgandi og særandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.10.2007 | 09:07
Kokhraustir þrælasalar
Mönnum hreinlega ofbýður ósannindin"
Þetta segir Marteinn Másson lögmaður Nordic construction line (NLC)
Hann er ekki einn um það,ég held að felstum hugsandi mönnum ofbjóði hvernig þessar starfmannaleigur starfa,og ósannindin í eigendum þeirra.
En Afl starfsgreinafélag hefur gert alvarlegar athugasemdir við starfsemi þeirra og GT verktaka,það er ekki langt síðan Arnarfell skar GT verktaka úr snörunni vegna þessara sömu mála,og það er ekki smuga til að fá mig til að trúa því að Afl starfgreinafélag leggi þetta fyrirtæki í einelti.
Ofast er eldur þar sem er reykur.Mér hefur fundist frá því að ég heyrði fyrst um svona starfmannaleigur að það væri hálfgerð ólykt af þessari starfsemi,í flestum tilfellum er verið að níðast á verkamönnunum, og notfæra sér neyð þeirra,þeir eru í flestum tilfellum allsendis ókunnugir starfsemi verkalýðsfélaga og vita ekkert um kaup eða kjör í landinu,hvað þá að þeir eigi einhver réttindi,mér segir svo hugur að starfsmannaleigan hlaupi hratt yfir þá sögu ef hún jafnvel "gleymir" því ekki alveg.
Hvernig á svo að fjármagna dæmið, sá sem rekur leiguna gerir það ekki af takmarkalausri gæsku sinni, hann ætlar að græða á henni,og gerir það,stjórnvöld hér á landi hafa flotið sofandi að feigðarósi og ekkert gert sem vit er í til að koma böndum á þessa starfsemi sem er ekkert annað en ÞRÆLAHALD klætt í nýjan búning.
Svo má velta því fyrir sér hvað lögreglan gerir í máli þessara átta sem plataðir voru suður í gær þegar búið var að hella í þá víni,ætlar hún að sleppa þeim úr landi eins og nauðgaranum um daginn,eða ætlar hún að kyrrsetja þá sem vitni????????????????
![]() |
Mönnum hreinlega ofbýður ósannindin" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2007 | 08:46
Úr Blaðinu
Get ekki stillt mig um að koma hérna með udirfyrirsögn úr Blaðinu
Ein flensa getur lokað heilum leikskóla
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2007 | 08:41
Atvinnumenn og fúskarar
Enginn hefur játað aðild að þjófnuðum
Í dómi Hæstaréttar kemur fram að enginn hinna grunuðu hafi játað aðild sína að þjófnaðarmálunum. Hins vegar er fallist á að rökstuddur grunur sé um að svo kunni að vera
Eiginlega kemur þessi frétt mér dálítið í opna skjöldu,það er búið að hantaka fjölda manns vegna þjófnaða úr verslunum,þýfið fundist heima hjá þeim,engin játað þjófnað,en fallist á að það sé rökstuddur grunur um að mennir séu þjófar.
Það er eins og mig reki til þess minni, að þegar venjulegir innlendir fúskarar í þessari grein eru teknir og eitthvað finnst heima hjá þeim, af varningi sem þeir geta ekki gert grein fyrir þá séu þeir taldir meira en líklegir sökudólgar,..
Útlendir atvinnumenn í faginu virðast fá aðra meðferð miða við þessa frétt,og sennilega vegna þess að þeir eru fagmenn
![]() |
Enginn hefur játað aðild að þjófnuðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)