Færsluflokkur: Dægurmál
28.11.2007 | 20:31
Hættulegt starf !
Árás í sænskum skóla
Það virðist sem kennsla fari að verða með hættulegri störfum ,hvar sem er í heiminum.
Kennarar hljóta að fara krefjast áhættuþóknunar, ef fram fer sem horfir.
Ég tala nú ekki um ef þeir eru eins illa launaðir og íslenskir kennarar
![]() |
Árás í sænskum skóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.11.2007 | 12:54
Var síðasta heimsmetið að hverfa sporlaust?

![]() |
Vilja að Steve Fossett verði úrskurðaður látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2007 | 08:10
Ruglingsleg útvarpsfrétt kl 08. Svona er staðan kl 08
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2007 | 07:57
Finnst Kolbrúnu nýfædd börn vera kynlaus.
Hélt satt að segja þegar ég sá fyrirsögnina að nú ætti að fara að taka tímaritið Bleikt og Blátt til bæna,en það var nú heldur betur annað.
Eru líkur á að þessi hefð sé til komin í heilbrigðisráðuneytinu,hefði ekki verið nærtækara að spyrjast fyrir um þetta á fæðingardeildinni,og meiri líkur að einhver þar vissi eitthvað um þetta.
Ég hef aldrei skilið þessa bleiku og bláu merkingu á börnum,finnst hún heimskuleg, en það hefur aldrei pirrað mig neitt.
En ef þetta er eitthvað sem ástæða er til að ræða í þinginu,þá má spyrja sig að því hvernig þingmenn hagi vinnu sinni,og hvað þeir telji að gagnist landi og lýð.
Við eigum allt okkar eftir þó börn á fæðingardeildum séu auðkennd með bleiku og bláu,það á hreinlega að banna svona heimskulegar fyrirspurnir sem þjóna engum tilgangiog gera ekkert nema að tefja fyrir vitlegri umræðu.
. Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður Vinstri grænna hefur lagt fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra á Alþingi um hvernig sú hefð hafi mótast að klæða stúlkur í bleikt og drengi í blátt á fæðingardeildum og auðkenna þá með bláum armböndum og stúlkur með bleikum. Spyr Kolbrún hvort ráðherra telji koma til greina að því verði breytt þannig að nýfædd börn séu ekki aðgreind eftir kyni og að þau verði framvegis klædd í hvítt eða aðra kynhlutlausari liti.
![]() |
Ekki meira blátt og bleikt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2007 | 07:36
Veit Bjarni hvað langt er frá Hornafirði til Akureyrar??
Ætli að það hafi ekki verið eðlileg ákvörðun að taka skipið inn á Fákrúðsfjörð, til að auðvelda köfurum varðskipsins starfið .
Framkvæmdastjórinn er kannski ekki mjög vel að sér um hvernig það er að kafa við skip úti á rúmsjó,þetta er hættulegt starf og það var engin ástæða að taka neina áhættu í þessu tilviki
Bjarni Sigurðsson, framkvæmdastjóri Dreggs Shipping, segist ósáttur við þá ákvörðun að fara með Axel til Fáskrúðsfjarðar. Þetta hafi verið gert án samráðs við sig.
![]() |
Ósáttur við áningu á Fáskrúðsfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2007 | 20:26
Skjót viðbrögð hjá Héraðsdómi Suðurlands.......................
Loksins er að rofa til í kerfinu, stórhættulegur vodka pela þjófur tekinn og dæmdur með hraði,og settur inn.
Snöfurmannlega gert, og sýnir okkur að dómsvaldið er loksins farið að meta eðli afbrota, og forgangsraða þeim til dóms eftir því sem þau eru alvarlegri.
Greinilega er umræða um þessi má að undanförnu, farin að bera árangur?
![]() |
Mánaðar fangelsi fyrir að stela vodkapela |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.11.2007 | 18:04
Af tvennu illu eða hvað?
![]() |
Vildi komast aftur í fangelsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.11.2007 | 17:49
Einkavæðingin lætur ekki að sér hæða.
![]() |
Björgunarmenn fengu ekki aðgang að slysstað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.11.2007 | 07:52
Fyrir hverja starfar SMÁÍS ?
Hvernig væri að að fá menn með viti til að hafa umsjón með höfundavörðu efni, í staðin fyrir þessa rugludalla sem veita STEF OG SMÁÍS forstöðu,Væri ekki nær fyrir þessa pilta að reyna að vinna eitthvað raunhæft fyrir "umbjóðendur" sína?, og þá annað enn bara að banna, og banna meira.
Hvað kemur í hlut höfundanna þegar þessir postular eru búnir að verðleggja "vinnuna" sína?
Hvernig væri að þessir menn reyndu að koma á fót hliðstæðum vefsíðum sem gæfu mönnum kost á þessu efni á hóflegu verði?
Þar kemur að vísu að veikum punkti, því það er nú svo með okkur Íslendinga að allt sem við gerum þarf helst að borga sig ekki seinna, en strax í gær, og þegar verið er að ná í svona efni ,kemur annað þjóðareinkenni í ljós. Það að leita til að komast hjá greiðslu.
Í raun eru allir að tapa á þessu,þess vegna þarf að losna við þessa eintrjáninga sem stjórna þessu núna og fá einhverja hugmyndaríka menn til að reka þessi battery þannig að allir geti vel við unnað.
það er engum greiði gerður með svona aðgrðum. Bönnl eiða yfirleitt af sér, að leitað er leiða til að komast framjá þeim á einhvern hátt.
![]() |
Hart barist um höfundarréttinn á torrent-síðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.11.2007 | 07:18
Þessi hlýtur að verða skráður sem "Íslandsvinur"
![]() |
Dan hefur aldrei komið til Dalvíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)