Færsluflokkur: Dægurmál
27.11.2007 | 07:15
Hefði ekki verið sterkara að mæta í þáttinn og mótmæla þar??
![]() |
Konur sniðganga Silfrið í mótmælaskyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2007 | 20:21
Nú þarf ég hjálp. Hvað er mannúðarglæpur??
Talið er að um 180 þúsund Kúrdar hafi lítið lífið í aðgerðum íraskra stjórnvalda til að bæla niður uppreisn. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu, að al-Majid væri sekur um þjóðarmorð, mannúðarglæpi og stríðsglæpi fyrir að skipa her og öryggissveitum að beita efnavopnum gegn óbreyttum borgurum.
![]() |
Fordæma tafir á aftöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2007 | 20:17
Varla er þetta einsdæmi ,má ekki ætla að fleira leynist í pokahorninu?
Neytendasamtökin hafa kært til Neytendastofu vörusvik við sölu á ginsengi.
Það eru örugglega víða vörusvikin,eru það ekki vörusvik þegar kjötbiti sem maður kaupir og sýnist muni duga fyri 3-4,rýrnar svo mikið við eldun að hann rétt dugir tveimur,eða kjötáleggssneið sem skilin er eftir óvarin yfir nótt,lítur út eins smá skítablettur á diskinum morguninn eftir,svona mætti lengi telja.
![]() |
Kæra vörusvik við sölu á gingsengi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2007 | 08:07
Barna þrælkun---------Breyttur tíðarandi.
Ekki ætla ég að mæla barnaþrælkun bót, en viðbrögð þeirra sem hafa tjáð sig um þetta mál eru nokkuð dæmigerð fyrir þá þjóðfe´lagsbreytingu sem er að verða.
Borin er saman barnaþrælkun og vinna unglinga sem algeng var á síðustu öld..það er sitthvað Jón og séra Jón.börn innan fermingar voru ekki þrælkuð á síðustu öld hér á landi en það var álitið hollt fyrir unglinga að vinna ,og víðast held ég það hafi verið passað að þeir ofgerðu sér ekki.
Ég vann í mörg ár á vinnustað þar sem byrjað var kl 7 á morgnana og oft unnið til 10 og 11 á kvöldin,á sumrin fengu unglingar vinnu þegar þeir komu úr skólum,og margir þeirra höfðu ,það gott upp úr sumarvinnunni að þeir gátu að nokkru leiti fjármagnað áframhaldandi nám.
En þeir byrjuðu aldrei að vinna fyrr en 8 á morgnana og voru yfirleitt látnir hætta kl 5,við lítin fögnuð þeirra.
Hæfileg vinna og áreynsla drepur engan.
Getur ekki skeð að vaxandi eiturlyfjaneysla sé að hluta vandamál ,vegna þess að fólk, og þá sérstaklega unglingar hafa alltof mikinn tíma sem þeim reynist erfitt að nota.
Það er tilgangslaust að benda á að aldrei hafi verið eins mikið framboð afþreyingar og nú,en ég held að hæfileg vinna og áreynsla færi betur með sálarlíf og líkama unglinganna okkar,heldur en slímsetur fyrir framan tölvuskjái .
![]() |
Börn tína bómull fyrir H&M |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2007 | 07:41
Hvaða vísbendingar eru það???????..........................................
Eru þær meiri en þær órökstuddu fullyrðingar sem settar hafa verið fram að undanförnu?
Það vita allir að ofbeldi er beitt gagnvart konum,en því er líka beitt gagnvart karlmönnum og börnum þótt i minna mæli sé hér á landi en erlendis, (eða vonandi er það svo)
Mér finnst hlægilegt þetta svokallaða sextán daga átak um afnám ofbeldis gegn konum,þetta eru dæmigerð vinnubrögð þegar allt er komið í hnút, og úrræðaleysið algert hjá þeim sem með þessi mál fara.
Það sem hefur viðgengist í aldir verður ekki upprætt á sextán dögum,en þetta hljómar vel og gefur fólki þá hugmynd að það sé unnið ötullega að þessum málum.
En hver er árangurinn ? Lítill--Mjög lítill--Enginn?
Það er uppi sterk umræða um þessi mál hér á landi en það er líka allt,ekki verður séð að yfirvöld séu með neinar lausnir,þrátt fyri þessar svo kölluðu vísbendingar.
Vonandi verða þær til þess að það verði tekið á þessum málum með festu ,og hætt verði öllu hálfkáki.
![]() |
Mansal að skjóta rótum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2007 | 07:22
Hvernig í fjandanum getur KYRSETT flugvél verið á heimleið?
![]() |
Kyrrsett vél á heimleið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.11.2007 | 20:24
Var landeigandinn ekki bara í fullum rétti?
![]() |
Paul McCartney fékk ekki að lenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2007 | 12:00
Eru það ekki sérhagsmunir? Heitir þetta að axla ábyrgð?
Eru það ekki sérhagsmunir okkar að fara fram á aukinn losunarkvóta. á meðan við ætlumst til þess að aðrar þjóðir minnki sinn?
Þórunn segir þjóðum heims bera siðferðisleg skylda til að ná saman um frekari skuldbindingar í þeim efnum eftir að gildistíma Kýótóbókunarinnar lýkur í árslok 2012. Þar sé ábyrgð okkar Íslendinga engu minni en annarra ríkja.
Það blasir við að við munum þrýsta á að aðrir axli sína ábyrgð.
Er þetta dæmi um að axla ábyrgð?
Ísland fékk undanþágu við gerð Kýótóbókunarinnar sem felst í því að okkur er heimilt að auka losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 10% á gildistímanum meðan aðrar aðildarþjóðir minnka sína losun að meðaltali um 5,2%.
![]() |
Sérhagsmunir aukaatriði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2007 | 09:56
Ekki sama Jón og séra Jón.
Í þessu máli má sjá hvernig Vinnumálastofnun starfar,þarna var ekki um virkjanaverktaka að ræða,með tugi manna í vinnu heldur litla sælgætisverksmiðju með nokkra starfsmenn.
En þarna stóð ekki á Vinnumálastofnun að sýna vald sitt með banni og sektum,þrátt fyrir að viðkomandi fyrirtæki hefði ekki fengið viðunandi upplýsingar þó leitað væri eftir.
Ég hef alltaf haft litla trú á þessu vinnumiðlunarapparati,og ekki eykst hún við þessa frétt
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt fyrirsvarsmann Góu-Lindu sælgætisgerðar til að greiða 200 þúsund króna sekt til ríkissjóðs fyrir brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga.Var hann fundinn sekur um að hafa ráðið í vinnu til sín þrjár konur frá Serbíu, á tímabilinu frá byrjun febrúar 2005 til 30. apríl 2006, án þess að tilskilin atvinnuleyfi lægju fyrir og einnig að hafa ekki tilkynnt Útlendingastofnun um að hann hefði fengið útlending í þjónustu sína áður en þær hófu störf.
Einnig hélt fyrirsvarsmaðurinn því fram að umræddar konur hefðu haft öll tilskilin leyfi til að hann mætti ráða þær til vinnu hjá fyrirtæki sínu í febrúar 2005 og hefðu leyfi þeirra gilt til ársloka það ár. Þá taldi hann jafnframt að honum hefði verið heimilt að hafa þær áfram í vinnu á árinu 2006 á meðan vinnsla umsókna um framlengingu leyfa stæði yfir.
Einnig var tekið fram að útlendingi með tímabundið atvinnuleyfi hjá ákveðnum atvinnurekanda væri óheimilt að hefja störf hjá öðrum atvinnurekanda. Vildi hann skipta um starf yrði nýi atvinnurekandinn að sækja um atvinnuleyfi til Vinnumálastofnunar og útlendingnum væri óheimilt að hefja störf fyrr en leyfið hefði verið veitt.
Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að maðurinn hefði ekkert gert til að leyna broti sínu, torvelda rannsókn málsins eða draga það á langinn. Nokkuð virðist hins vegar hafa skort á að yfirvöld gættu leiðbeiningarskyldu eða fylgdu málinu eftir með skýrum fyrirmælum til mannsins sem margsinnis leitaði til yfirvalda vegna málsins. Auk þess hefði tekið mjög langan tíma að afgreiða kæru hans á synjun atvinnuleyfa til æðra stjórnvalds, eða um tíu mánuði.
![]() |
Yfirvöld gættu ekki leiðbeiningaskyldu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.11.2007 | 23:00
Tveir bílar, árekstur og fólksbíll rákust saman! Snilldar fyrirsögn
![]() |
Árekstur á Laugarvatnsvegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)