Færsluflokkur: Dægurmál

Hvað varð um þá gömlu?

Nýir skógareldar í Malibu

Hefði ekki farið betur á því að hafa fyrirsögnina svolítið öðruvísi,allavega hef ég aldrei séð gamlan eld.


mbl.is Nýir skógareldar í Malibu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var Vinnslustöðinni bjargað úr vargaklóm ? Hvað tekur þá við.....................

áframhaldandi óvissa um framtíð félagsins með tilheyrandi úlfúð getgátum?

Eða hreinn meirihluti heimamanna sem vill halda fyrirtækinu og  aflaheimildunum í Vestmannaeyjum?

 


mbl.is Ísfélagið vill kaupa hlut Stillu í Vinnslustöðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur vinna enn flest húsverkin,kemur það einhverjum á óvart

.

Er það körlum að kenna? eru konur svo kúgaðar að þær geti ekki einu sinni valið sér starfssvið vegna ofríkis karlmanna?

Enginn teljandi munur var á hlutfallinu á Norðurlöndum og annars staðar og segir Knud Knudsen, einn vísindamannanna sem gerði rannsóknina, að þetta sé í samræmi við jafnrétti á atvinnumarkaði, þar sem jöfnuði er hvergi nærri náð. Fáar konur séu t.a.m. prófessorar og verkfræðingar á Norðurlöndum, meðan kvenþjóðin sé nær alráð innan heilbrigðisstétta.

Það eru konur bæði í verkfræðinga og prófessorsstöðum,gætu þær ekki verið fleiri þar ef þær vildu?

Ég held að svona sé þetta með öll störf ef kvenfólk hefur áhuga á þeim þá fara þær í það,það er aukast að konur stjórni allskonar stórum bifreiðum og vinnuvélum,þær eru til sjós, og raunar held ég að það séu konur í flestum starfsgreinum.

Ég held að þessi umræða um kynbundin störf sé ekki síður konum að kenna en körlum,það eru fleiri greinar eftir konur, um að þeim sé mismunað á vinnumarkaði,heldur en greinar eftir karla sem telja konur ekki gjaldgengar nema í sum störf.


mbl.is Konur vinna enn flest húsverkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru það mistök að gera það sem má EKKI ? Gaf út ólöglegt byggingarleyfi

Byggingarfulltrúi Reykjanesbæjar veitti Fasteignafélaginu Stoðum leyfi til að byggja nýja Húsasmiðjuverslun á Fitjum án þess að bæjarstjórn hefði samþykkt aðalskipulag sem heimilaði byggingu verslunarinnar. Þá hefur skipulagsstofnun enn ekki samþykkt deiliskipulag vegna þessara breytinga, en slíkt samþykki er hinn lagalegi grundvöllur fyrir útgáfu byggingarleyfa.

Framkvæmdir við byggingu verslunarinnar eru þó langt á veg komnar, þrátt fyrir að þær stangist á við lög.

Steinþór Jónsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs bæjarins, segir að um mannleg mistök hafi verið að ræða. „Byggingarfulltrúinn gefur þarna út byggingarleyfi áður en þetta kemur til samþykktar. Það eru greinileg mistök í embættismannakerfinu. Það liggur fyrir. Það er alltaf miður og það þarf að taka á því. Þetta mál er nú hjá lögfræðingi bæjarins."

Þetta eru engin mistök,byggingafulltrúinn er greinilega ekki starfi sínu vaxinn.


mbl.is Gaf út ólöglegt byggingarleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað veldur ekki krabbameini?

Rautt kjöt er óhollt og krabbameinsvaldandi og alveg sérstaklega kjötálegg.

Það er svo komið með hinar vísindalegu rannsóknir, að það fer að verða fljótlegra að telja upp það sem ekki er krabbameinsvaldandi,og skiptir þá litlu hvort um ætt eða óætt er að ræða.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að lifnaðarhættir manna svo og matarvenjur hafa breyst gríðarlega,sérstaklega seinni partinn á síðustu öld.

Fólk borðar meira af allskonar tilbúnum réttum sem er fljótlegt að elda,því tíminn er svo naumur í neysluþjóðfélaginu,um leið er þetta mun óhollari fæða en hefðbundinn matur,svo bætist hreyfingarleysið við og þá fer fólk að safna holdum.

Á meðan vísindamenn og aðrir sérfræðingar geta ekki verið sammála um annað, en vera ósammála, í þessum efnum sem öðrum, þá borða ég mitt rauða kjöt af bestu lyst og þrífst vel af, enda íslenska lambakjötið betra en besta eðal konfekt.

Í lokin vil ég benda á að fólk sem ekki reykir og hefur aldrei,deyr úr lungnakrabba ekki síður en reykingamenn,fólk sem borðar grænmeti og hleypur 100 km á viku eða meira deyr úr hjartasjúkdómum,og svona mætti lengi telja.

Ég held að það séu svo margir samverkandi þættir sem þarna koma við sögu að það verði seint hægt að benda á einn afgerandi sökudólg?


mbl.is Bannfæra allt rautt kjöt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið um afhendingar á Grímseyjarferjunni á næstunni.

Hafa málin tekið einhverja nýja stefnu er hætt við jarðgöngin,fá Siglfirðingar ferju í staðinn?

 Ferjan verður þó ekki afhent Siglfirðingum fyrr en eftir áramót.?

Atur á móti fær Vegagerðin skipið afhent í næstu viku,

Svo er spurningin hvort eða hvenær Grímseyingar fá ferjuna?

 


mbl.is Grímseyjarferja líklega í notkun eftir áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samantekin ráð eða hvað?

 Ingunnarskóla í Grafarholti hafa fjórir kennarar farið í fæðingarorlof frá því í haust og sá fimmti fer í fæðingarorlof eftir rúma viku. Þessir fimm bætast í hóp annarra frjósamra starfsmanna skólans en alls hafa starfsmennirnir eignast hátt í 20 börn á rúmu ári.
mbl.is Starfsmenn eignuðust hátt í 20 börn á rúmu ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Datt einhverjum eitthvað annað í hug?

Unnið faglega á Keflavíkurflugvelli eftir settum reglum

mbl.is Unnið faglega á Keflavíkurflugvelli eftir settum reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður að senda Jóannes til Íslands að læra!Eða íslendinga til Færeyja!!

Jóannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, hefur vikið Jacob Vestergaard úr embætti ráðherra innanlandsmála í færeysku landsstjórninni en Vestergaard varð uppvís að því, reyna að hafa áhrif á það hverjir yrðu ráðnir í skiprúm á strandferðaskipum eyjanna.

Þetta er nú svo lítilfjörlegt að ráðherrar hefðu varla litið vð  þessu,bara látið einhverja yndirtyllu afgreiða þetta fyrir sig .

Enda takið eftir því, að það var ekki  eins og hann hafi látið ráða ráða í þessi pláss,hann reyndi bara að hafa áhrif 


mbl.is Færeyskum ráðherra vikið úr embætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers?

Farið yfir áætlanir um byggingu nýs sjúkrahúss

Enn er verið að velta sér upp úr þessu hátæknisjúkrahússkjaftæði,eru þau sjúkrahús em notuð eru í dag bara með 2 eða3 flokks l búnað?

Væri ekki meiri nauðsyn að búa betur að þeim  sjúkrahúsum sem fyrir eru,koma fólkinu af göngum og rangölum þannig að mannsæmandi getið talist?

Eins og staðan virðist vera í þessum málum í dag,er vandséð þörfin á einni byggingunni enn til að standa meira og minna tóm vegna rekstrarvandamála.

Eða hverfa þau eins og dögg fyrir sólu ef reist er eitt stykki "hátæknisjúkrahús".


mbl.is Farið yfir áætlanir um byggingu nýs sjúkrahúss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband