Færsluflokkur: Dægurmál
12.12.2007 | 13:17
Bandarískir hryðjuverkamenn?
Utanríkisráðuneytið mun skoða mál íslenskrar konu, sem segir á bloggsíðu sinni að hún hafi verið látin dúsa án matar og drykkjar tímunum saman á JFK flugvelli í New York og síðan hlekkjuð og stungið í fangelsi, fyrir þá sök að hafa farið framyfir leyfilegan dvalartíma í landinu fyrir 12 árum.
Það var ítarlega sagt frá þessu í hádegisfréttum og þótt ekki væri nema helmingurinn af því sem konan segir sannur,er það hálfa mikið meira en nóg.
Ég er samt viss um að alt sem hún sagði var satt,því það er svo komið að þegar Kaninn á í hlut þá er ég tilbúinn að trúa hverju sem er upp á hann
Er þetta þjóðfélag endanlega að hrökkva upp af standinum,þeir sjá hryðjuverkamenn í hverju horni,þeir brjóta mannréttindi á fólki fyrir minnstu ,og jafnvel ætlaðar yfirsjónir,þeir haga sér eins og þeir væru einhver heimslögregla með ótakmarkaða heimild til að taka fólk og flytja til Bna án þess að gefa neinar skýringar á handtöku,nenni ekki að telja upp fleira.
Væri sennilega fljótari að telja upp það sem þeir gera löglega, eins og aðrar þjóðir, sem telja sig sæmilega siðmentaðar.
Ég á ekki von á því að þesi rannsókn skili miklum árangri,þetta eru "vinir" okkar sem eiga í hlut og ekki má styggja þá
![]() |
Ráðuneyti skoðar mál konu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2007 | 12:46
Hrinda þessu í framkvæmd strax!
Lægri iðgjöld með ökurita.
Mér finnst að tryggingarfélög ætu að taka þetta upp sem allra fyrst,er lítið hrifin af því að vera að borga himinhá iðgjöld vegna þeirra sem keyra ekki eins og lög gera ráð fyrir.
Hugmyndin er góð,ég hef ekkert að fela í sambandi við aksturinn,ef ég ek of hratt,nota ekki belti eða annað sem skyldugt er,og er tekinn fyrir, þá er það bara mátulegt á mig,ég vissi betur og get engum um kennt, nema sjálfum mér.
![]() |
Lægri iðgjöld með ökurita |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2007 | 07:31
Ódýr afsökun,en algeng hjá opinberum stofnunum.
Hef aldrei orðið gjaldþrota
Ætli starfsmenn opinberra stofnana haldi að kúnnarnir séu fífl, datt þetta í hug þegar ég las þessa grein,hef sjálfur fengið svona svör frá opinberri stofnun vegna leiðréttingar sem ég þurfti að fá.
Ég er enginn spekingur í tölvum ,en þykist samt vita að í flestum tilfellum er ekkert mál að leiðrétta vitleysur sem settar eru inn.Það er aftur á móti spurning hvort þeir sem vinna við þetta, séu einhverjir páfagaukar sem fylla út í fyrirframgert form, og ef eitthvað fer úrskeiðis hjá þeim, hafi þeir ekki kunnáttu til að leiðrétta það.
Það er alltof algeng afsökun að mistök séu tölvunni að kenna, ég hef alltaf haldið að tölvan gerði bara það sem ég segi henni að gera.
Svörin sem maðurinn fær hjá tollstjóra eru að þetta séu tæknileg vandræði í tölvukerfinu og erfiðlega gangi að laga það. Margir aðrir séu í þessari stöðu
Heimskulegt svar!
![]() |
Hef aldrei orðið gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2007 | 14:24
Áströlsk stjórnvöld með sýndarmennsku
Ákvörðun dómara í Ástralíu um að fangelsa ekki níu menn sem sakaðir eru um að hafa nauðgað tíu ára frumbyggjastúlku, hefur vakið mikla reiði þar í landi
.ER ÞESSI DÓMARI ANDLEGA HEILL?
Hvernig ætli stjórnvöld muni redda sér úr þessari klípu,Kevin Rudd hefur lýst mikilli andúð á þessum dómi,en er hann búinn að víkja dómaranum úr starfi,þegar hann verður búinn að því skal ég reyna að trúa,að um breytta stefnu gagnvart frumbyggjum sé að ræða.
Ríkisstjórn kynþátta hatarans John Howards ,var að sjálfsögðu búin að planta skoðanabræðrum sínum í allar stöður eins og þessi dómur ber með sér,nú er spurning hvað Rudd gerir í málefnum frumbyggja sem reynt hefur verið ljóst og leynt að útrýma,og mannréttindasamtök og aðrar slíkar stofnanir að mestu leyti litið framhjá.
Kannski verður hann bara RUDDI eins og forverinn?
![]() |
Nauðgunardómur fordæmdur í Ástralíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2007 | 07:25
Er ekki að verða nóg komið af vitleysunni?
Femínistafélagið kærir Vísa-klám
Valitor sér um svokallaða færsluhirðingu fyrir marga erlenda klámvefi, en í því felst að þegar fólk kaupir klám með Visa-korti sér Valitor um innheimtuna. Höskuldi H. Ólafssyni, forstjóra Valitor, var ekki kunnugt um kæruna þegar 24 stundir höfðu samband við hann en sagði fyrirtækið ekki standa í ólöglegri starfsemi eða starfsemi sem stríddi gegn stefnu Visa erlendis.
Ég hef ekkert á móti Femínistum svo lengi sem þeir halda sig við jörðina með málflutning sinn,en svona fíflagangur gengur nú alveg fram af mér,hvað eru konurnar að fara?,hvað meina þær?, skilja þær ekki að þær eru að skaða málstað sinn, og sérstaklega þó þeirra sem hófsamari eru í þeirra hópi.
Þarna er löglegt fyrirtæki að sinna skyldu sinni,geta þær ekki alveg eins sakfellt launagreiðendur almennt fyrir að borga laun,sem einhver notar svo til kaupa á því sem Femínistar kalla vændi og annað slíkt.
Það er erfitt að hafa samúð með málflutningi sem teygir sig langt út fyrir öll vitræn mörk,með það að leiðarljósi að tilgangurinn helgi meðalið.
![]() |
Femínistafélagið kærir Vísa-klám |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.12.2007 | 22:06
Er það ekki örugglega best fyrir barnið ?
Skiluðu ættleiddu barni eftir 7 ár.
Sé ekki að fólk sem svona kemur fram sé hæft til þess að eiga börn. Samlagaðist ekki fjölskyldunni hverslags kjaftæði er það,vildi ekki borða matinn þeirra hvaða mat vildi hún þá?,ætla þau að halda því fram að hún hafi bara viljað Kóreanskan mat.?
Hvernig verður með þeirra eigin börn?,ekki geta þau skilað þeim eins og hverju öðru dóti sem ekki nýtist þeim lengur´.
Ég er hræddur um að úr því að þau gátu skilað þessu barni af sér eins og ekkert ekkert sé, barni sem þau eru búin að ala upp frá óvita aldri, muni þeim veitast erfitt að láta sér þykja vænt um sín eigin börn.Sennilega er þessi litla stúlka bara ljónheppin að losna frá svona brengluðu fólki.
![]() |
Skiluðu ættleiddu barni eftir 7 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2007 | 20:22
Fyrir hvaða almenning?
Breskur maður lokaðist inni á óhituðu almenningssalerni í fjóra daga.
Það er greinilega ekki margmennt á þessum stað,ef enginn þarf að nota salernin svona lengi,hvernig skyldi þrifum vera háttað þarna?,ætli sé bara þrifið á 4-5 daga freasti?
![]() |
Fastur á salerni í fjóra daga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2007 | 20:11
Er þetta ekki dæmi um valdníðslu?
Innréttingar ríkisins skemmdar.
Hvað gengur ráðamönnum ríkisins til?,voru þeir ekki búnir að lofa eða allavega að gefa ádrátt um að húsið, ásamt innréttingum fengi að standa og yrði gert upp?
Til hvers að rífa innan úr því með það að markmiði að flytja til Reykjavíkur?
Er þessum mönnum ekki sjálfrátt,hvar er betra að varveita þessar glæsilegu innréttingar en í upprunalegu húsi?:
Það á að gera húsið upp og flytja ríkið aftur á sinn stað,sem er ólíkt glæsilegri umgjörð um þennan verslunarrekstur heldur en einhver sjoppa eða bensínstöð.
Og í framtíðinni,ríkismenn og aðrir,látið ykkur nægja að eyðileggja og skemma gamla hluti og byggingar á ykkar heimaslóðum,látið okkur í friði með okkar,við getum sjálf skemmt og eyðilagt án hjápar,ef á þarf að halda.
![]() |
Innréttingar ríkisins skemmdar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2007 | 13:36
Þessi er sennilega betur taminn ?
Trúlega hefur hann þurft að skoða gaumgæfilega, hvor væri líklegri til að hlíða skilyrðislaust,það er ekki gott fyrir svona menn að velja einhvern með sjálfstæða skoðun.ER hann ekki búinn að gefa það út að þrátt fyrir að geta ekki boðið sig fram til forseta. ætli hann að ráða áfram????
Pútín mun hafa átt erfitt með að gera upp við sig hvort hann styðji Medvedev, sem er lögfræðingur og stjórnarformaður ríkisorkufyrirtækisins Gazprom, og Sergei Ívanov, annars aðstoðarforsætisráðherra, sem gegndi um tíma embætti varnarmálaráðherra.
![]() |
Pútín styður Medvedev í forsetakjöri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2007 | 09:18
Hákarl er ekki fyrir aumingja-----------------------------------
og því verður ekki mótmælt, að velverkaður Hákarl er hnossgæti, og ef þeir sem ekki eru uppaldir við þennann þjóðlega rétt, læra að borða hann verða þeir sama sinnis,Ég þekki fjölda marga sem hafa komist á bragðið á fullorðinsárum, (svona vel komnir yfir barnamatvendnina) og eru sólgnir í hann.
Þetta er þjóðlegur og hollur matur sem er á undanhaldi, eins og svo margt annað sem haldið hefur líftórunni í þessari þjóð.Það eru ekki að verða margir sem veiða hákarl eða kunna að verka hann,það er svolítið meira sem þarf að gera en að veiða hann,grafa hann í jörð í þrjá mánuði,og selja síðan sem fullverkaða vöru eins og margir virðast halda.
Veiðarfærin eru ekki flókin,en þurfa sína umhirðu og viðhald,beitan er ofast selur hnísa eða eitthvert úrgangs ket.
Aftur þarf góða og vandaða aðstöðu í landi,það er verið að búa til mat, og ekki sama hvernig er að því staðið. Það er byrjað á því að skera Hákarlinní nokkuð stór ferkönntuð stykki sem síðan eru þvegin vandlega og sett í fiskikör,yfirleitt er reynt að koma honum í frost á þessu stigi, ef farið er að nálgast maðkatíma,en eftir að fluga lifnar er ekki hægt að láta Hákrlinn í kös,því hann er ekki grafinn lengur,heldur settur í rimlakassa og duglegt farg ofan á.Það er á undanhaldi hjá sumum að fergja, segja það breyti engu.
Eftir hæfilegan tíma í kösinni,er Hákarlinn tekinn og þveginn,stóru ferköntuðu stykkin,er skorin í svokallaðar Beitur og settur hanki á þær til að hengja þær upp,og ekki hafa þær mjög stórar því þá er meiri hætta á skemmdum. Hákarlinn er hengdur upp í rimlahjöllum, sem er reynt að byggja einhverstaðar þar sem vel blæs um þá frá öllum áttum,og þar fer svo fullnaðarverkunin fram. All er þetta samt háð tíðarfari um hvernig til tekst,en þegar vel tekst er komið þarna sælgæti sem bráðnar í munni,ég tala nú ekki um ef þessu fylgir vel súr blóðmör.
Þetta er í stórum dráttum þaðf ferli sem þarf við þessa verkun.
E.S.Ég var kominn vel yfir tvítug þegar ég lærði að borða Hákarl og slátur,Brennivín með Hákarli er einhver þjóðsaga sem passar ekki að mínum dómi, nema því að Brennivíið virkar ekki alveg eins vont, ef maður fær sér strax Hákarlsbita eftir sopann.
![]() |
Gordon Ramsay ælir íslenskum hákarli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)