Færsluflokkur: Dægurmál
9.1.2008 | 11:51
Leikur hennar er ekkert annað en frábær snilld ?
Get ekki betur séð en frúin sé á grænni grein. þótt hún nái ekki útnefningu til forsetakjörs.
Eftir þessa leiksýningu hljóta Hollyvood leikstjórar að rífast um að fá hana í hlutverk, sjaldan séð betri útfærslu, og tímasetningu á krókódílatárum.
![]() |
Gáfu tárin Clinton byr? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2008 | 08:23
Baldursgötureitur ! = Braskreitur ?
Byr búinn að lána tæpar fjörutíu miljónir út á ónýt hús.
Kanna lánastofnanir ekki sjálfar ásigkomulag þeirra eigna sem menn eru að taka lán út á?
Er nóg að mæta í jakkafötum með bindi og skjalatösku, ásamt mynd af nærliggjandi húsi sem lítur sæmilega út ?
Eru þeir kannski að fara út í hótelrekstur,standa þeir að baki Baldursgötu ehf ?
Baldursgata 32 hefur verið yfirgefið hús í tvö ár að sögn Helgu Láru og hefur útigangsfólk hafst þar við. Það virðist vera regla þegar gömul hús eiga í hlut, ef braskarar sjá sér hag í að kaupa, þá komast þeir upp með það að láta þau grotna niður, til að auðvelda sér eftirleikinn. þeir vita að í flestum tilvikum þegar þeir bera víurnar í svona hús, að það muni verða andstaða gegn niðurrifi þeirra. Þegar eignarhaldi er náð, þá eru þessi hús gjarnan höfð mannlaus, til að flýta fyrir hnignun þeirra. Og svo þegar þeir láta til skarar skríða, eru helstu rök þeirra að það sé nauðsynlegt að rífa þessi hús því þau séu ónýt.
Borgaryfirvöld standa sig ekki í þessum efnum, því þeir hafa úrræði bæði í reglugerðum og lögum til að skikka húseigendur til að hugsa sómasamlega um fasteignir sýnar.
"Mér blöskrar að borgin skuli vera að hampa mönnum sem ganga svona um eignirnar sínar,segir Helga Lára Þorsteinsdóttir , íbúi á umræddum Baldursgötureit,
.
![]() |
Lykt af braski í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.1.2008 | 08:02
Er þetta eðlileg veiðimennska ? Hvað segja talsmenn skotveiða ?
Ég bjóst við að tvö til þrjú skot myndu duga, en fimm? Nei."
Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu, að veiðimenn legðu í vana sinn að reyna að drepa bráðina í fyrsta skoti,en samkvæmt þessari frétt er það bara vitleysa í mér.
Nú skal það viðurkennt, að ég hef haft megnustu andúð á skotvopnum alla mína ævi, og hef þar af leiðandi takmarkað vit á skammbyssum, en skammbyssa til stórgripaveiða, þótt sérsmíðuð sé, sýnist mér ekki vera að gera sig, ef þarf fimm skot til að murka lífið úr dýrinu.
Ég hélt að stórir og þungir rifflar væru notaðir til stórgripaveiða til að drepa fljótt og vel,en það er kannski hluti af´þessu sporti að dunda við að skjóta dýrið ?
Einhvernvegin sé ég ekki hvernig veiðimenn geta komið með skotheld rök, til að verja svona veiðar, þar sem það kemur fram í viðtalinu, að það var ákveðið fyrifram, að skjóta þau með að minnsta kosti tveimur skotum í lungun. Sóðaskapur...
![]() |
Veiddu tvo risavísunda í Minnesota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2008 | 12:05
Hvað vakti fyrir guði þegar hann valdi þessa þjóð ?
Hvað oft hefur maður ekki heyrt þessa setningu, en án þess að fá viðunandi skýringu. Hvaða guð úthlutaði Ísraelum þessu landsvæði sem þeir búa á?, með hjálp og dyggum stuðningi Breta og Bandaríkjamanna. Eru þeir kannski guðinn?
Ísraelar berjast um á hæl og hnakka til að koma í veg fyrir að skýrsla, um byggingaframkvæmdir á Palestínsku landi, sem Hebreskt blað hefur undir höndum birtist..uppbyggingu landnemabyggða gyðinga þar sem m.a. kemur fram að umfangsmikil uppbygging hafi farið þar fram án tilskilinna leyfa... ? Hver getur gefið það leyfi samkvæmt lögum?
Er ekki dálítið langsótt að tala um landnám á og í landi sem er fullbyggt fyrir,samkvæmt mínum skilningi á orðinu landnám, er það þegar verið er að koma sér fyrir á óbyggðu landi.
... að áhrifamenn innan ísraelska varnarmálaráðuneytisins ráku sig á það að bandarísk yfirvöld hefðu aðgang að nákvæmari upplýsingum um byggingar Ísraela á palestínsku landi en til voru innan ráðuneytisins.
Ég er ekki hlyntur hernaði og hef trúað því fram að þessu, að ofbeldi geti aldrei annað en leitt af sér annað, en meira ofbeldi. Er það guði þóknanlegt?
Og ég hef litla samúð með Ísraelsmönnum, sem er eitt öflugasta hernaðarveldi sögunnar,þegar þeir eru að kvarta unan hernaði Palistínumanna. Ég get ekki séð að þeir séu hætis hót betri.
Það verður hver að liggja, sem hann hefur um sig búið. Það virðist henta Bandaríkjamönnum að trúa á, og hjálpa Ísraelsmönnum að viðhalda þessu ógnarjafnvægi,en sagan er að sýna það æ betur að þeir eru lítt til þess fallnir að velja sér vini,og veðja yfirleitt á ranga hesta í þeim efnum, því vinir þeirra í hinum ýmsu löndum, eru oftar en ekki afar óvinsælir í löndum sínum
![]() |
Berst gegn birtingu gagna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2008 | 08:01
Ljótt að heyra !!!
Að aka framhjá fólki sem er hjálparþurfi er glæpur,við getum ekki leyft okkur að hugsa sem svo, að næsti maður hljóti að gera eitthvað.
Hvað gengur mönnum til, er sjálfselska okkar að verða svo mikil, að við látum sem við sjáum ekki þá sem eru hjálparþurfi, erum við virkilega svo tímalaus, að við getum ekki stoppað til að veita aðstoð, er okkur alveg sama hvernig slösuðum manni við vegbrúnina reiðir af, er hann gleymdur um leið og hann er að baki ?, þessar og miklu fleiri spurningar hvarfla að manni við lestur svona fréttar.
Og við þessum spurningum fást engin svör, en kannski, ef nógu margir, láta álit sitt í ljós á svona "MANNGÆSKU", væri möguleiki að einhverjir rumskuðu, og hugsuðu sig um ef þeir kæmu að svona tilfelli.
Í fréttinni segir lögreglan að þetta hafi skeð um bjartan dag, Mbl. segir kl.3.30, á þessum tíma árs er frekar skuggsýnt þá , aftur á móti er sæmilegasta birta kl 15.30
![]() |
Margir óku framhjá slösuðum manni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2008 | 08:24
Var brennan við veginn ? Eða á honum ?
![]() |
Ekið á stúlku við áramótabrennu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2008 | 06:22
Ekki hissa þegar Vilhjálmur Egilsson á í hlut !!!
Það þarf enginn að vera hissa á þessum orðum Vilhjálms, hann er ekki í þessu starfi vegna gáfna sinna, eða vegna þess hvað hann sé yfirmáta talnaglöggur,hann er dæmigerður flokksgæðingur og ráðin vegna þess í þetta starf.
Ég sé hins vegar ekki til hvers hann er að fleipra um málefni sem eru ekki í hans verkahring,og honum koma ekkert við.Ríksstjórnin er örugglega með á sínum snærrum menn sem eru fullfærir um að reikna hvað þetta kostar,og það sem meira er,reikna það á réttum forsendum.
Skósmiður haltu þig við skóinn þinn,var einu sinni sagt og er það í fullu gildi ennþá,Vilhjálmur á að gæta hagsmuna atvinnurekenda,og hvað ríkið gerir í skattamálum og yfir höfuð í þessum samningum sem nú standa fyrir dyrum,get ég ekki séð að atvinnurekendum komi það neitt við.
![]() |
Kostnaðurinn þrefalt minni en SA telur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.1.2008 | 15:41
Hvorir eru meiri glæpamenn... Íslendingar eða Pólverjar...?
Mér finnst nú að þessi frétt sé í mesta lagi til að hlægja að henni , svona talnaleikur er bara fyrir grínista sem hafa bókstaflega ekkert að gera nema að rembast við að búa til fréttir úr engu.
Ég hef enga andúð á Pólverjum þekki að vísu ekki marga, en þeir sem ég þekki eru prýðisfólk, en að þessi talnaleikur segi okkur eitthvað um löghlýðni Íslendinga og Pólverja, held ég að sé afskaplega langsótt.
Ég hef heldur aldrei skilið þessa þörf fjölmiðla, til að taka fram þjóðerni þeirra sem gerast brotlegir við lögin, liggur nokkuð á því fyrr en viðkomandi hefur verið dæmdur, mörgum mönnum er sleppt eftir yfirheyrslu, þar sem þeir hafa getað sýnt fram á sakleysi sitt, en þá er búið að segja frá í fréttum að þessi sami eða sömu, séu af þessu eða hinu þjóðerninu.
![]() |
Pólverjar þeir löghlýðnustu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tvær greinar í Fréttablaðinu vöktu athygli mína í gær,báðar tengajst þær furðufyrirbærinu T.R. sem einn góður Bloggari, vill meina að standi fyrir "Til Ríkisins. þar sem meginmarkmið hennar virðist vera að skerða bætur,endurheimta greiddar bætur,og véfengja rétt manna til bóta,um það snúast þessar fréttir.
Önnur er um konu sem missti handlegg upp við öxl, það segir sig sjálft að það heftir hana alveg gífurlega við allar daglegar athafnir, ein af þeim er athöfn sem við gerum umhugsunarlaust, en hún á ómögulegt með að gera, og það er handsnyrting, svosem að klippa neglur og annað slíkt, hún býr auk þess við þann kvilla, að vegna lyfja sem hún hefur verið á vegna handleggsmissisins, er hún með lélegar neglur sem brotna auðveldlega og þarf því að snyrta oftar en algengt er.
Hún fór fram á við T.R. að fá styrk til að geta farið á stofu til að láta gera þetta þar þegar þyrfti, svör þeirra voru þau að þeir skildu vandann en reglugerðin, gerði ekki ráð fyrir svona vanda svo hún yrði að leita annar úrræða.
Hin fréttin er um mæðgur sem búa sín í hvoru sveitarfélagi, konan er ósjálfbjarga vegna heilsubrest, meðal annars mjög sjónskert og öryggslaus af þeim sökum,þar sem hún þarf stöðuga umönnun fór dóttirin fram á umönnunarbætur frá T. R.en var synjað vegna þess að þær byggju ekki í sama sveitarfélagi.
Niðurlag fréttarinnar er svohljóðandi. Óumdeilt er að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum um að móðir kæranda er í þörf fyrir mikla umönnun sem dóttir hennar veitir henni.Hinsvegar er ekki heimilt að greiða dótturinni umönnunarbætur þar sem þær mæðgur hafa ekki sama lögheimili.Því er synjun T.R. um greiðslu bótana staðfest.
Hvernig væri að gera þetta anskotans kerfi aðeins manneskjulegra,það er kannski ekki hægt að búast við því að reglugerðarsmiðirnir sjá við öllu sem upp kann að koma, ( þótt þeir séu naskir að finna veika bletti T.R. í vil) Það er óumdeilt að í báðum þessum tilfellum er um réttmætar kröfur að ræða en þá skortir mannlega þáttinn, og viljann til úrbóta.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.1.2008 | 09:32
Merkileg vinnubrögð !!! Stefnt að því að auka starfsemi...
Neytendastofu á sama tíma og stór hluti starfsmanna hefur sagt upp störfum.
Segi menn svo að ekki sé hægt að hagræða.
Stór hluti starfsmanna Neytendastofu hefur sagt upp störfum á síðustu misserum
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir Við
stefnum að því að stórefla Neytendastofu. Hún þarf að vera miklu öflugri og það er það sem við vinnum að."
![]() |
Starfsmenn flýja Neytendastofu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)